N.k. laugardag, þorláksmessu ætlum við að hittast við Hafnarfjarðarkirkju kl. 10, fá okkur göngu og skella okkur svo einhvers staðar inn og fá okkur kaffi.
Vala
19 desember 2017
25 nóvember 2017
Gaman, gaman
22 Fjallafreyjur mættu við dælustöðina og gengu í 1 klst um bæinn í fínu vetrarveðri. Að göngu lokinni var okkur boðið í kaffi hjá Maddý og þar bættust 8 í hópinn. Kærar þakkir elsku Maddý fyrir okkur, þetta var virkilega gott og gaman.
Vala
Vala
23 nóvember 2017
ATH BREYTING
Í þetta sinn hittumst við ekki við Kænuna n.k. laugardag heldur við DÆLUSTÖÐINA við Vesturgötu, gegnt Bungalowinu. Sama tímasetning. Göngum að venju í ca klukkutíma og förum síðan í kaffi á góðum stað.
Vala
Vala
19 nóvember 2017
Lillý 70 ára
10 nóvember 2017
Göngutúr og jólaföndur
Mæting við Herjólfsgötu 36 kl. 10 næsta laugardag og gengið í klukkutíma. Síðan jólaföndur og kaffi að okkar hætti kl. 11. Verð 1500 kr.
Sjáumst.
Sigga
Sjáumst.
Sigga
12 október 2017
Kænan
Kænugöngur hefjast næsta laugardag kl. 10 og verða á hverjum laugardegi fram í april 2018.
Gengið í ca klukkutíma og síðan kaffi og rúnstykki í Kænunni Hf. á eftir.
Sigga
Gengið í ca klukkutíma og síðan kaffi og rúnstykki í Kænunni Hf. á eftir.
Sigga
07 október 2017
Þorlákshöfn
Við áttum góða
heimsókn til Þorlákshafnar í dag.
24 Fjallafreyjur fóru af stað kl. 10 frá Hafnarfirði og voru komnar til Þorlákshafnar kl. 11, þar sem við hittum fararstjórann okkar, hana Ágústu Ragnarsdóttur. Hún leiddi okkur skemmtilega leið að vitanum og á bergið, þar sem brimaldan dundi á klettunum. Stórkostleg sjón.
Eftir gönguna var farið á Svarta Sauðinn og þar tóku Kata og Tony á móti okkur með gæðalegum mat.
Þar á eftir var gengið um bæinn, skrúðgarðurinn heimsóttur og leikskólinn, en lóðin þar var sérdeilis skemmtileg og falleg. Þar á eftir heimsóttum við íþróttahúsið og sundlaugina en þar er glæsileg aðstaða fyrir bæjarbúa og gesti. Síðan var gengið að kirkjunni og þaðan að kaffi og listahúsinu Hendur í Höfn. Þar ttók Dagný húsráðandi á móti okkur og sagði okkur sína sögu og kaffihússins. Þar var margt skemmtilegra muna og glerlistar og við fengum okkur kaffi og þá bestu súkkulaði köku sem ég hef fengið.
Góðum degi lauk þar um kl. 15:30 og við sluppum við rigningu en nokkur vindur var sem kom ekki að sök.
Takk fyrir samveruna.
Sigga
Ps. Þetta var seinasta skipulagða ganga ársins og næsta laugardag verður gengið frá Kænunni í Hf. kl. 10

Hópurinn í upphafi göngu |
Ágústa við minnismerki Auðar djúpúðgu |
28 september 2017
Þingvellir í haustlitum
23 september 2017
Gráhelluhraun
Þrátt fyrir óspennandi veður mættu 8 til göngu í Gráhelluhrauninu. Haft var á orði hvað við fyndum lítið fyrir veðrinu, þó rigndi allan tímann, en vindur var minni en búist var við. Genginn var hringur eftir göngustíg og reiðstíg. Dáðumst að litum haustsins, skoðuðum minnismerki um skógræktarfrömuði, tóftir fjárskjóls við Gráhellu og gamla vatnsból Hafnfirðinga. Nutum svo nestisins í útikennslustofu í einu rjóðrinu, en þar eru bekkir og þak yfir sem kom sér vel því þegar við sátum þarna herti hressilega á regninu. Gangan með nestisstundinni tók 1 1/2 tíma.
Vala
Vala
Við minnisvarða skógræktarfrömuða |
21 september 2017
Plan B
Heimsókninni í Haukadalinn er frestað til næsta árs vegna mjög slæmrar veðurspár á þeim slóðum. Heldur er spáin skárri á heimaslóð og verður því genginn hringur í Gráhelluhrauni frá fjárhúsinu við Kaldárselsveg. Gengið verður eftir göngustíg og reiðstíg. Ætla má að gangan með nesti í góðu rjóðri taki 1 1/2 til 2 tíma. Mæting við Iðnskólann í Hafnarfirði kl. 9.
Vala
Vala
Í þungbúnu veðri horfir maður á það sem er nær |
Í Gráhelluhrauni í vikunni |
16 september 2017
Hrauntunguskógur
Þar sem veðurspáin boðaði slagveðursrigningu á Þórustaðastíg var samþykkt á plani uppástunga um að fara heldur í skjólið í Hrauntunguskógi, þar átti líka að vera mikið minni rigning. Svo reyndist vera, aðeins dropar í lofti og skjólið gott þrátt fyrir mikinn þyt í trjánum. Við okkur blasti mikil litadýrð og þótti okkur gaman að troðast um þröngar sprungur og bara njóta þess sem náttúran bauð uppá. Tók gangan með nestisstoppi um 2 klst. 5 voru mætt.
Vala
Vala
14 september 2017
Þórustaðastígur
Næsta laugardag verður gengið eftir Þórustaðastíg á Reykjanesi. Gengið verður frá Vigdísarvöllum yfir Núpshlíðarhálsinn að gígnum Moshól og svipuð leið til baka. Þórustaðastígur liggur frá Vigdísarvöllum framhjá Keili að Þórustöðum í nágrenni Kálfatjarnar, en við munum einungis taka hluta leiðarinnar. Ætla má að gangan verði um 8 km og frekar aflíðandi hækkun um 200 m. Mæting við Iðnskólann í Hafnarfirði kl. 9. Nesti. Hálfsdagsferð.
Vala
Vala
Þórustaðastígur við Vigdísarvelli |
Gígurinn Moshóll handan Núpshlíðarháls |
09 september 2017
Friður og fegurð.
14 Fjallafreyjur hófu göngu dagsins frá Lágafellskirkju í yndislegu haustveðri. Gengið var áleiðis að Hafravatni, sem var spegilslétt og fallegt. Gengum uppá Lala, sem er 245 mys og fram á brúnir Hafrahlíðar. Þaðan var útsýnið fagurt og frítt í allar áttir. Þar sem veðrið var svo gott og enginn að flýta sér lengdum við gönguna aðeins og gengum uppá Reykjaborg, 288 mys. Þar var ný sjónskífa sem var vel stúderuð. Göngu lauk síðan við Lágafellskirkju 4 og hálfum tíma seinna og vegalengdin var ca. 14 km.
Góður dagur með góðum göngufélugum.
Góður dagur með góðum göngufélugum.
Á Hafrahlíð, Hafravatn í baksýn |
Á Lala |
Á Reykjaborg |
07 september 2017
Lágafell-Hafravatn-Lali
Næsta laugardagsganga verður frá Lágafellskirkju. Gengin vegaslóð að Hafravatni í gegnum skógrækt Mosfellsbæjar og uppá Lala,(245mys.) sem flugdrekamenn nota mikið til svifflugs.
Á leið okkar verða nokkrar berjaþúfur sem vert er að staldra við.
Ca. 11 km ganga og tæpl. 200 m hækkun.
Mæting við Iðnsk. Hf. kl. 9, eða við Lágafellskirkju kl. 9:20.
Nesti
Sigga
Á leið okkar verða nokkrar berjaþúfur sem vert er að staldra við.
Ca. 11 km ganga og tæpl. 200 m hækkun.
Mæting við Iðnsk. Hf. kl. 9, eða við Lágafellskirkju kl. 9:20.
Nesti
Sigga
Hafravatn |
05 september 2017
Helgafellið
Þá er Helgafellsgöngum Fjallafreyja lokið þetta árið. 7 Fjallafreyjur gengu á fjallið í dag. Lítils háttar úrkoma í byrjun og þoka á toppnum, engu að síður fínasta ganga. Gengum "gömlu leiðina" upp, en niður "gilið".
Vala
Vala
04 september 2017
02 september 2017
Hressandi
10 Fjallafreyjur og 1 Fákur mættu í gönguna í dag.
Gengum frá bílastæðinu uppá Kögunarhól í Esjuhlíðum og þaðan eftir hlíðinni og niður vegaslóða niður hjá Mógilsá. Nokkrar berjaþúfur urðu á leið okkar sem voru vel nýttar. Falleg leið.
Hressandi gola og þurrt í byrjun en nokkur rigning síðasta hálftímann.
6.7 km og tveir og hálfur tími.

31 ágúst 2017
Esjuhlíðar-Kögunarhóll
27 ágúst 2017
Reykjanesferð
Það var rúmlega 40 manna hópur sem lagði af stað í ferð um Reykjanesið.
Fararstjóri ferðarinnar var Reynir Sveinsson frá Sandgerði og var hann hafsjór af fróðleik og skemmti
sögum sem hann miðlaði okkur á sinn skemmtilega hátt.
Veðrið var ekki uppá sitt besta, rok og rigning en þornaði upp um miðjan dag.
Fyrsti viðkomustaður var hverasvæðið við Seltún, síðan var farið á Krísuvíkurberg. Eftir það var gengið niður að Selatöngum og merkar minjar skoðaðar þar. Ekið var um Hópsnesið, en þar eru margar minjar um sjóslys og að Eldvörpum, sem er mikið háhitasvæði. Brimketill var skoðaður og var þar tilkomumikið brimið. Eftir það var Gunnuhver skoðaður og ekið niður að Reykjanesvita.
Ekið var í gegnum Hafnir og farið í gegnum gamla Nato varnarsvæðið. Margar sögur sagði Reynir okkur frá þessum stöðum.
Að lokum var stoppað í Hvalsneskirkju, þar sem fararstjórinn sagði okkur sögu kirkjunnar og Hallgríms Péturssonar, sem var þar fyrstu prestsár sín.
Að endingu fengum við góðan kvöldverð í Röstinni sem er við Garðskagavita.
Eftirminnilegur og skemmtilegur dagur með góðum ferðafélugum.

Við Seltún |
Á Krísuvíkurbergi |
Á Selatöngum |
Við Gunnuhver |
23 ágúst 2017
19 ágúst 2017
Sól og dýrðardásemd....
......var hjá okkur í dag, 11 sem mættum í gönguna í úr Dyradal og inn í Marardal.
Fjölbreytt landslag, litríkt og heillandi, dalir, hryggir og klettabelti urðu á leið okkar og útsýnið dásamlegt. Marardalurinn tók á móti okkur grænn og fallegur og eyddum við dágóðum tíma þar í nesti og náttúruskoðun.
Að göngu lokinni var gengið um dyrnar á Dyradal og þar drukkið seinnakaffið.
Gangan tók tæpa 4 og hálfan tíma, var 12 km og uppsöfnuð hækkun um 600 m.
Sigga
Að göngu lokinni var gengið um dyrnar á Dyradal og þar drukkið seinnakaffið.
Gangan tók tæpa 4 og hálfan tíma, var 12 km og uppsöfnuð hækkun um 600 m.
Sigga
Í Marardal |
Þingvallavatn og Skjaldbreiður |
17 ágúst 2017
Marardalur
10 ágúst 2017
Nauthólsvík-Skerjafjörður
07 ágúst 2017
Svava 60 ára
03 ágúst 2017
Búrfellsgjá
01 ágúst 2017
Helgafellið
Bara 5 Fjallafreyjur mættu í gönguna á Helgafellið í dag, þrátt fyrir frábært veður. Fórum gilið í báðum leiðum.
Vala
Vala
31 júlí 2017
29 júlí 2017
Sumardagur
10 Fjallafreyjur mættu í göngu dagsins í Mosfellsbæ. Veðrið lék við okkur þótt nokkur vindur hafi blásið um tíma. Sólin lét svo sjá sig þegar leið á gönguna.
Eftir gott nestisstopp í Sumarkinn var hringnum lokað og komið í bílana kl. 13:30.
Göngu tími 4 klst og 9-10 km.
Góður dagur og allar alsælar :)
Eftir gott nestisstopp í Sumarkinn var hringnum lokað og komið í bílana kl. 13:30.
Göngu tími 4 klst og 9-10 km.
Góður dagur og allar alsælar :)
Fjörugar Fjallafreyjur |
27 júlí 2017
Æsustaðafjall-Reykjafjall-Sumarkinn
Næsta laugardag ljúkum við hringnum sem við náðum ekki að klára í fyrra.
Gangan hefst í Skammadal í Mosó og gengið á Æsustaðafjall, þaðan á Reykjafjall og síðan niður i Sumarkinn þar sem við drekkum nestið okkar.
Gönguhækkun ca 200 m. Þægileg ganga, ca 10 km hringur.
Þetta verður sannkölluð sólarganga skv. veðurspánni :)
Mæting við Iðnsk. Hf. kl. 9 og við Krónuna í Mosó kl.9:20.
Nesti.

Á Reykjafjalli |
Í Sumarkinn |
22 júlí 2017
Stardalshnúkur og Stiftamt
Þrátt fyrir þokusúld og smá blástur mættu 6 til göngu í dag. Gengið var frá bænum Stardal á Stardalshnúk (373 m.y.s.) og þaðan yfir á Stiftamt og síðan niður að húsarústunum við Ríp þar sem nestið var borðað. Til baka var gengið eftir vegarslóða. Reyndist gangan 6,4 km löng og tók rúma 3 tíma. Okkur til mikillar undrunar sýndi GPS tækið uppsafnaða hækkun um 470 m, þeir telja fljótt metrarnir þegar verið er að fara upp og niður á víxl. Fínasta ganga en útsýnið hefði mátt vera meira, en þarna er margt að sjá í góðu skyggni. T.d. má sjá hvernig Leirvogsáin rennur úr Leirvogsvatninu í gljúfrið sem Tröllafoss rennur um, og ekki má gleyma öllum fjöllunum þarna í kring.
Vala
Vala
Lóðréttur veggur Stiftamts, sem betur fer er greiðfærar hinu megin. |
Mumma, Kristín, Vala, Gógó og Kristín. Kalli myndaði. |
20 júlí 2017
Stardalslhnúkur
15 júlí 2017
Hettuvegur
Byrjað var á þvi að skoða umhverfi Krýsuvikurkirkju, greinilegt er að undirbúningur fyrir komu nýrrar kirkju er hafin, en hlaðinn hefur verið nýr grunnur. Síðan hófst gangan við upphafsskilti Hettuvegar, farið yfir Krýsuvíkurmýrar, en þar eins og víðar í göngunni var allt mikið blautara en fyrir nokkrum dögum síðan, enda mikið rignt upp á síðkastið. Farið var upp í nýhristan Sveifluhálsinn (jarðskjálftar í gærkvöldi) um Rauðhól og þaðan að Sveiflu og Hettu. Ekki hentaði að nota fyrirfram valin útsýnis nestisstað, þar sem það gerði sudda akkúrat þegar þangað var komið. Við fundum nú samt annan góðan stuttu síðar þegar stytt hafði upp. Þegar við nálguðumst Arnarvatnið beygðum við af leið og skoðuðum hverasvæðið við Hattinn, en þá kom hellidemba og meira að segja hagl smástund. Skoðuðum nú samt svæðið og litum yfir vatnið áður en haldið var niður Ketilstíginn að Seltúni í sól. Þetta var mjög fjölbreytt ganga bæði hvað varðar umhverfi og veður. 7 tóku þátt og reyndist gangan 8 km, hækkun um 200 m og tók 4 tíma. Mjög skemmtileg ganga með góðum göngufélögum.
Vala
Vala
Við upphaf göngu |
Rennandi blaut við enda Hettuvegar, en stuttu síðar stytti upp |
14 júlí 2017
Hettuvegur í Sveifluhálsi
Hettuvegur er stikuð leið (ath. ekki stígur) frá Krýsuvíkurkirkju að Ketilstíg við Arnarvatn. Skiljum eftir bíla við Seltún svo ekki þurfi að ganga til baka. Skoðað verður hverasvæði við Hatt áður en Ketilstígur verður genginn í Seltún. Þetta er um 8 km ganga og um 200 m hækkun. Mæting við Iðnskólann í Hafnrfirði kl. 9. Áætluð heimkoma milli kl. 13 og 14. Góðir skór, stafir og nesti.
Vala
Vala
Við Krýsuvíkurkirkju 2012 |
Við Hettu |
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)