29 júlí 2017

Sumardagur

10 Fjallafreyjur mættu í göngu dagsins í Mosfellsbæ. Veðrið lék við okkur þótt nokkur vindur hafi blásið um tíma. Sólin lét svo sjá sig þegar leið á gönguna.
Eftir gott nestisstopp í Sumarkinn var hringnum lokað og komið í bílana kl. 13:30.
Göngu tími 4 klst og  9-10 km.
Góður dagur og allar alsælar :)
Fjörugar Fjallafreyjur

27 júlí 2017

Æsustaðafjall-Reykjafjall-Sumarkinn

     Næsta laugardag ljúkum við hringnum sem við náðum ekki að klára í fyrra.
Gangan hefst í Skammadal í Mosó og gengið á Æsustaðafjall, þaðan á Reykjafjall og síðan niður i Sumarkinn þar sem við drekkum nestið okkar.
Gönguhækkun ca 200 m. Þægileg ganga, ca 10 km hringur.
Þetta verður sannkölluð sólarganga skv. veðurspánni :)
Mæting við Iðnsk. Hf. kl. 9 og við Krónuna í Mosó kl.9:20.
Nesti.
Sigga
Á Reykjafjalli
Í Sumarkinn

22 júlí 2017

Stardalshnúkur og Stiftamt

Þrátt fyrir þokusúld og smá blástur mættu 6 til göngu í dag.  Gengið var frá bænum Stardal á Stardalshnúk (373 m.y.s.) og þaðan yfir á Stiftamt og síðan niður að húsarústunum við Ríp þar sem nestið var borðað.  Til baka var gengið eftir vegarslóða.  Reyndist gangan 6,4 km löng og tók rúma 3 tíma.  Okkur til mikillar undrunar sýndi GPS tækið uppsafnaða hækkun um 470 m, þeir telja fljótt metrarnir þegar verið er að fara upp og niður á víxl. Fínasta ganga en útsýnið hefði mátt vera meira, en þarna er margt að sjá í góðu skyggni.  T.d. má sjá hvernig Leirvogsáin rennur úr Leirvogsvatninu í gljúfrið sem Tröllafoss rennur um, og ekki má gleyma öllum fjöllunum þarna í kring.
Vala

Lóðréttur veggur Stiftamts, sem betur fer er greiðfærar hinu megin.

Mumma, Kristín, Vala, Gógó og Kristín.  Kalli myndaði.

20 júlí 2017

Stardalslhnúkur

Ganga hefst nálægt bænum Stardal og verður gengið á Stardalshnúk (gönguhækkun um 200 m) og Stiftamt.  Mæting við Iðnskólann í Hafnarfirði kl. 9.  Hálfsdagsferð.
Vala

Útsýni af Stardalshnúk

Stiftamt og Stardalshnúkur (Skálafell kíkir uppfyrir)

15 júlí 2017

Hettuvegur

Byrjað var á þvi að skoða umhverfi Krýsuvikurkirkju, greinilegt er að undirbúningur fyrir komu nýrrar kirkju er hafin, en hlaðinn hefur verið nýr grunnur.  Síðan hófst gangan við upphafsskilti Hettuvegar, farið yfir Krýsuvíkurmýrar, en þar eins og víðar í göngunni var allt mikið blautara en fyrir nokkrum dögum síðan, enda mikið rignt upp á síðkastið.  Farið var upp í nýhristan Sveifluhálsinn (jarðskjálftar í gærkvöldi) um Rauðhól og þaðan að Sveiflu og Hettu.  Ekki hentaði að nota fyrirfram valin útsýnis nestisstað, þar sem það gerði sudda akkúrat þegar þangað var komið.  Við fundum nú samt annan góðan stuttu síðar þegar stytt hafði upp.  Þegar við nálguðumst Arnarvatnið beygðum við af leið og skoðuðum hverasvæðið við Hattinn, en þá kom hellidemba og meira að segja hagl smástund.  Skoðuðum nú samt svæðið og litum yfir vatnið áður en haldið var niður Ketilstíginn að Seltúni í sól.  Þetta var mjög fjölbreytt ganga bæði hvað varðar umhverfi og veður.  7 tóku þátt og reyndist gangan 8 km, hækkun um 200 m og tók 4 tíma.  Mjög skemmtileg ganga með góðum göngufélögum.
Vala

Við upphaf göngu

Rennandi blaut við enda Hettuvegar, en stuttu síðar stytti upp

14 júlí 2017

Hettuvegur í Sveifluhálsi

Hettuvegur er stikuð leið (ath. ekki stígur) frá Krýsuvíkurkirkju að Ketilstíg við Arnarvatn.  Skiljum eftir bíla við Seltún svo ekki þurfi að ganga til baka.  Skoðað verður hverasvæði við Hatt áður en Ketilstígur verður genginn í Seltún.  Þetta er um 8 km ganga og um 200 m hækkun.  Mæting við Iðnskólann í Hafnrfirði kl. 9.  Áætluð heimkoma milli kl. 13 og 14.  Góðir skór, stafir og nesti.
Vala

Við Krýsuvíkurkirkju 2012
Við Hettu

10 júlí 2017

Dýrðardagur

Það var fallegur laugardagur þegar 31 Fjallafreyja og Fjallafákar mættu í göngu á Hlíðarkistu í Gnúpverjahreppi. Anna, bóndi í Hlíð fylgdi okkur uppá Hlíðarkistuna, sem er 365 m.ys.
Það var smávegis rigningarsuddi á toppnum, en víðsýnið var gott til allra átta. Á niðurleið skein sólin aftur í heiði. Þegar niður var komið voru geiturnar í Hlíðskoðaðar og kjassaðar. Tryggvi bóndi sýndi okkur minnisvarða um Helga Péturs jarðfræðing og Nialsinna sem dvaldi langdvölum á bænum við margskonar rannsóknir.
Frá Hlíð var ekið að Stöðulfelli og gengið á Stöðulinn fyrir ofan bæinn. Dásamlegt útsýni til allra átta og landið skartaði sínu fegursta. Falleg gönguleið.
Í lokin var svo garðveisla í boði húsráðenda með kaffi og kræsingum.
Kærar þakkir Svana og Steinn, Magga og Viggó fyrir velheppnaðan dag :)
Sigga
Á toppi Hlíðarkistu
Beðið eftir kaffinu


05 júlí 2017

Hreppaferð

Næsta laugardag verður farið í Gnúpverjahrepp í Árnessýslu.
Lagt af stað frá Iðnsk. í Hf. kl. 9 og ekið að bænum Hlíð og gengið á Hlíðarfjall. Þaðan er víðsýnt til allra átta. Svana Sveins. leiðir för.
 Þægileg ganga og ca 260 m. hækkun. Síðan verður farið að Stöðulfelli á æskuslóðir Möggu Bjarna, og gengið á Stöðulfellið fyrir ofan bæinn.
Veðurspáin lofar góðu :)
Nesti, dagsferð
Sigga
Þjórsá og Hekla
Magga og Viggó á Stöðulfelli

04 júlí 2017

Helgafellið

Hressandi ganga á Helgafellið í dag, rösk ganga í fínu veðri.  6 mættar.
Vala


01 júlí 2017

Það sem við eigum gott

Endalaust getur maður dásamað það að eiga möguleika á að njóta hinnar íslensku náttúru.  Mikla fegurð bar fyrir augu í göngu dagsins, þó skyggnið hefði mátt vera betra, en raki í lofti gerði allt frekar muskulegt.  Hlýtt var þó og lygnt.  Gengið var með Trölladyngju að Sogaselsgíg og þaðan stefnt á skarðið milli Trölladyngju og Grænudyngju.  Í skarðinu komum við auga á þessa líka fínu leið upp á Grænudyngju og snarlega var ákveðið að fara þar upp og var svo sannarlega enginn svikinn af því, þvílík dýrð sem blasir við manni af Grænudyngjunni 402 mys).  Gangan reyndist 8 km og tók 3 1/2 tíma.  12 tóku þátt.
Vala