26 mars 2016

Urriðaholt

Það var hálfhryssingslegt þegar hópurinn hittist við IKEA í morgun, en strax og við fórum að hreyfa okkur var það fljótt að gleymast.  Gengum umhverfis Urriðaholtið á rúmum klukkutíma og að göngu lokinni var veisla í IKEA.  17 mætt í dag.
Vala

24 mars 2016

Gönguáætlun 2016 og laugardagsganga 26. mars

Sælar.
Nú er gönguáætlunin komin á síðuna okkar og um að gera að kynna sér hana vel.
Laugardagsgangan okkar verður frá IKEA, nálægt inngangi.
Þaðan finnum við okkur góða gönguleið og endum í kaffi á veitingastað IKEA.
Sigga

19 mars 2016

Síðasta Kænugangan

Aldeilis flott veður í dag, skunduðum "Leggjarbrjótinn" og nutum blíðviðrisins til fullnustu.  21 mætt í dag.  Eins og áður segir var þetta síðasta Kænugangan í bili.  Næsta laugardag verður Kænan lokuð og seinna í vikunni mun verða auglýst hér á síðunni hvað gert verður þá. Svo um að gera að fylgjast með.
Vala

05 mars 2016

Alveg að koma vor :)

Fínt veður 2°C, þurrt  og logn.  Gengum strandstíginn að venju en broddalaus í þetta sinn, því hálkan er á hröðu undanhaldi.  Þetta er alltaf jafngaman og gott.  16 mætt í dag.
Vala