28 febrúar 2015

Glæsilegt ..

..veður í dag, heiðskírt, vægt frost og hægviðri.  Virkilega fallegur dagur.  Gengum auðan strandstíginn, en víða er mjög hált og þá er gott að hafa stíginn sem oftast er ruddur og fínn.  18 mætt í dag.
Vala

26 febrúar 2015

Heiðskírt,

-7°C og skjólgott við höfnina eins og svo oft, svo við gengum strandstíginn rösklega þar sem færð var mjög góð.  Mjög fallegt veður.  14 mætt í dag.
Vala

07 febrúar 2015

Þorraganga

Það var milt veðrið þegur við lögðum af stað í þorragönguna þetta árið.
25 mættu til göngu og ein bættist við í matinn á eftir.
Genginn var hringur um norður- og vesturbæinn ca 45 mín.
Þorrahlaðborðið var sett upp við leikskólann á Víðivöllum og kræsingunum gerð góð skil.
Allir fóru saddir og sælir til síns heima klukkutíma síðar.
Takk fyrir daginn.
Sigga

Bara fimm ..

..mætt í dag, enda Þorragangan síðdegis.  Straujuðum strandstíginn í góðu veðri, 4°C, hægviðri og þurru.  Virkilega hressandi.
Vala