29 júní 2017

Umhverfis Trölladyngju

Næsta laugardag verður farið kringum Trölladyngju frá Höskuldarvöllum (ekinn vegurinn að Keili), gengið verður meðfram fjallinu að Sogaselsgíg, en þar voru sel á árum áður.  Síðan verður farið um skarðið milli Trölladyngju og Grænudyngju og er það mjög falleg leið.  Þetta eru 6-7 km og ætla má að heimkoma verði um kl. 13.  Mæting við Iðnskólann í Hafnarfirði kl. 9. Nesti.
Vala



24 júní 2017

Valahnúkar

5 vaskar Fjallafreyjur, þar af 3 sem tóku þátt í göngu gærkvöldsins mættu í morgun til göngu á Valahnúkana og var veður hið ágætasta, þurrt og milt.  Gengið var á hnúkana og Valirnir skoðaðir síðan var farið í Valaból þar sem nestis var notið og á bakaleiðinni fórum við um Helgadalinn og kíktum á  nokkra hella.  Þessi ganga tók rúmlega 2 1/2 klst.
Vala



Jónsmessuganga á Úlfarsfell

Ljúf ganga á Úlfarsfell að kvöldi Jónsmessu.  Lítilsháttar rigning mestallan tímann, stytti þó upp í lokin, en skyggni þó ótrúlega gott.  Ekki sást sólarlag, en nokkrir sólstafir glöddu þó augun og svei mér þá ef við sáum ekki bláan blett á himni yfir Móskarðshnúkunum.  Gangan tók 2:45 klst. og reyndist 6,3 km.  9 tóku þátt.
Vala


22 júní 2017

Úlfarsfell og Valahnúkar

Flott helgi framundan:  föstudagskvöld verður jónsmessukvöldganga á Úlfarsfell.  Mæting við Iðnskólann í Hafnarfirði kl. 21 eða við Hamrahlíðarskóg við Úlfarsfell kl. 21.15.  Nesti

Á toppi Úlfarsfells í glæsiveðri


Laugardag: gengið á Valahnúka við Helgafell.  Nestið borðað í Valabóli.  Mæting við Iðnskólann í Hafnarfirði kl. 9.

Við valina á Valahnúkum

Reikna má með að þessar göngur taki um 2 1/2 tíma.

Vala

10 júní 2017

Dásemdardagur

Það lék við okkur veðrið þegar 14 göngugarpar lögðu af stað frá bústað Mæju og Kidda í Eilífsdalnum áleiðis inn að Meðalfellsvatni. Útsýnið var fagurt inn Elífsdalinn og svo yfir Meðalfellsvatnið og fjallahringinn þegar komið var yfir hálsinn. Staldrað var við í Kaffi Kjós, þar sem sumir fengu sér hressingu. Komið var við í gamla bústaðnum, sem foreldrar Mæju og Dagnýjar áttu. Við göngulok höfðu 3 bæst í hópinn og eftir okkur beið kaffihlaðborð, sem voru gerð góð skil.
Gengnir voru 13 km og tók gangan fjóran og hálfan tíma með góðum stoppum.
Takk fyrir móttökurnar Mæja og Kiddi og fyrir leiðsögnina Dagný og Mæja.
Góður og fagur dagur :)
Sigga
Skrifa myndatexta

08 júní 2017

Eilífsdalur-Meðalfellsvatn

Næsta laugardag förum við inn í Eilífsdal og göngum þaðan í kringum Meðalfellsvatnið,                     14-15 km.
Systurnar Mæja og Dagný leiða för.
Nesti. Dagsferð. Mæting við Iðnsk. Hf. kl. 9 eða við Krónuna í Mosó kl. 9:20
Sigga
Meðalfellsvatn. Mynd tekin af Meðalfelli í Kjós.

06 júní 2017

Helgafell

Bjart, 9°C og hálfhryssingslegt en alltaf jafn gott og hressandi að ganga á Helgafellið.  Fórum "gömlu leiðina" upp og "gilið" niður.  8 mætt.
Vala


01 júní 2017

Eygló 70 ára.

Þessi flotta Fjallafreyja er sjötug í dag, 2. júní.
Við Fjallafreyjur sendum henni innilegar hamingjuóskir í tilefni dagsins.

Elliðaárdalur

Næsta ganga er um Elliðaárdalinn fagra og gróðursæla.
Mæting við Iðnsk. Hf. kl. 9
Nesti og gott veður.
Sigga