29 júní 2017

Umhverfis Trölladyngju

Næsta laugardag verður farið kringum Trölladyngju frá Höskuldarvöllum (ekinn vegurinn að Keili), gengið verður meðfram fjallinu að Sogaselsgíg, en þar voru sel á árum áður.  Síðan verður farið um skarðið milli Trölladyngju og Grænudyngju og er það mjög falleg leið.  Þetta eru 6-7 km og ætla má að heimkoma verði um kl. 13.  Mæting við Iðnskólann í Hafnarfirði kl. 9. Nesti.
Vala



Engin ummæli:

Skrifa ummæli