30 janúar 2016

Dásamlegt..

.. að ganga í dag.  Léttskýjað og froststilla, sólin sendi geisla sína upp fyrir fjöllin og var maður heillaður af fegurðinni.  Gengum strandstíginni.   Aldeilis flottur dagur, enda mættu 21 í dag.
Vala

23 janúar 2016

Rigning..

.. og gjóla en hiti 4-5°C svo það var bara gott og hressandi að ganga í dag.  Gengum strandstíginn eins og oft upp á síðkastið til að forðast hálkuna, sem þó er á miklu undanhaldi.  15 mætt í dag.
Nú eru bara 2 vikur í þorragönguna, upplýsingar verða sendar í tölvupósti þegar nær dregur.
Vala

09 janúar 2016

Góð mæting

Þrátt fyrir mikla hálku í bænum mættu 19 í dag.  Veður var gott -1-2°C og smá næðingur.  Genginn var strandstígurinn þar sem þar er besta færið þessa dagana.
Vala

02 janúar 2016

Það var logn og ládauður sjór

Fallegt var veðrið í fyrstu göngu nýjarsins. Þar sem var nokkuð þungfært var genginn göngustígurinn meðfram sjónum. 17 mættu til göngu og 18 í kaffi til Jónasar í Lóuásnum.
Takk fyrir okkur Jónas og Sigrun.
Fleiri myndir koma síðar á myndasíðunna.
Sigga
17 manns eftir göngu

Nýársfegurð við höfnina