22 september 2018

Úlfarsfell

Á fallegum haustdegi mættu 15 Fjallafreyjur til göngu á Úlfarsfell. Veðrið lék við okkur og útsýnið frábært. Gengnir voru rúmir 6 km og hækkun var um 250 m.
Sigga


21 september 2018

Úlfarsfell

Göngum á Úlfarsfell næsta laugardag. Róleg og þægileg uppganga upp frá Hamrahlíðarskógi og niður norðanmegin.
Mæting við Iðnsk. í Hf. kl. 9  eða  skógræktina við Hamrahlíð kl. 9:15.
Tekur ca 2 tíma.
Góð veðurspá.
Sigga
Útsýnið af Úlfarsfelli: Helgafell, Móskarðshnjúkar og Skálafell. 
Á góðum degi á toppi Úlfarsfells

16 september 2018

Þingvallaferð

Veðrið lék við okkur 14 Fjallafreyjur á Þingvöllum í gær. Náttúran skartaði sínu fegurstu litum og vatnið var fagurblátt.
Gengið var meðfram vesturbakka vatnsins, niður á nes þar sem nokkrir sumarbústaðir voru og svo til baka. Gangan var ca 6 km og tók rúma 2 tíma.
Góður dagur með góðum konum.
Sigga



13 september 2018

Haustlitaferð á Þingvöll

Næsta laugardag verður farið til Þingvalla þar sem haustlitirnir skarta sínu fegursta um þetta leytið.
Gengið meðfram Þingvallavatni.
Áætlaður tími 4-5 tímar með nesti og ferðum.
Mæting við Iðnsk. í Hf. kl. 9 eða við Krónuna í Mosó kl. 9:20.
Veðurspáin er góð.
Sigga

06 september 2018

Skógarganga

Næsta laugardag verður genginn  8 km hringur frá Borgarstjóraplani í Heiðmörk, góðir stígar og að mestu skjólgott. Nú eru skógarnir óðum að "taka lit" og að verða algjör veisla fyrir augað.  Reikna má með 2 1/2 klst í göngu og nesti.  Mæting við Iðnskólann í Hafnarfirði kl. 9.
Vala



03 september 2018

Helgafell

Síðasta ganga Fjallafreyja á Helgafellið þetta árið verður á morgun þriðjudag.  Lagt af stað frá Kaldárseli kl. 17.30.
Vala

01 september 2018

Hrauntunguskógur

Það er alltaf mjög gaman að fara um í Hrauntunguskógi, mikill gróður og fjölbreytt fuglalíf, hraunið puntar nú líka heilmikið uppá.  Þarna eru stikaðar leiðir, en samt mjög vandratað.  Eingöngu 2 mættu í dag og gengu 3,7 km á 2 klst, en yfirferðin var mjög hæg þar sem margt var að skoða og eins er mjög seinfarið þarna um.  Hægt er þó að velja þægilegri leiðir.
Vala



Þorbjarnarstaðaborg og Stórhöfði