24 júní 2017

Valahnúkar

5 vaskar Fjallafreyjur, þar af 3 sem tóku þátt í göngu gærkvöldsins mættu í morgun til göngu á Valahnúkana og var veður hið ágætasta, þurrt og milt.  Gengið var á hnúkana og Valirnir skoðaðir síðan var farið í Valaból þar sem nestis var notið og á bakaleiðinni fórum við um Helgadalinn og kíktum á  nokkra hella.  Þessi ganga tók rúmlega 2 1/2 klst.
Vala



Engin ummæli:

Skrifa ummæli