Næsta laugardag verður gengið eftir Þórustaðastíg á Reykjanesi. Gengið verður frá Vigdísarvöllum yfir Núpshlíðarhálsinn að gígnum Moshól og svipuð leið til baka. Þórustaðastígur liggur frá Vigdísarvöllum framhjá Keili að Þórustöðum í nágrenni Kálfatjarnar, en við munum einungis taka hluta leiðarinnar. Ætla má að gangan verði um 8 km og frekar aflíðandi hækkun um 200 m. Mæting við Iðnskólann í Hafnarfirði kl. 9. Nesti. Hálfsdagsferð.
Vala
|
Þórustaðastígur við Vigdísarvelli |
|
Gígurinn Moshóll handan Núpshlíðarháls |
Engin ummæli:
Skrifa ummæli