Þá er komið að árlegri helgarferð Fjallafreyja og -fáka. Mæting að Laugarbakka, Miðfirði föstudag eftir kl. 18.00, en dagskráin hefst kl. 21.00 með því að María flytur okkur fróðleik um svæðið. Á laugardeginum verður gengið á Káraborg og síðan gengið um á Hvammstanga og eitt og annað skoðað þar og að sjálfsögðu grill og gaman um kvöldið. Á sunnudeginum verður ekið og gengið um ýmsa merkisstaði á Vatnsnesi.
Vala
Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.
SvaraEyðaHlakka til. Þetta verður örugglega frábært eins og venjulega hjá okkur :)
SvaraEyðaSigga