13 maí 2017

Regn og sól

Það voru 18 sem mættu í göngu dagsins frá Grafarvogskirkju og að Reynisvatni.
Smá rigning  var í fyrstu en svo kom sólin fram úr skýjunum og yljaði okkur vel.
Genginn var rúmlega 10 km hringur í fallegu umhverfi Grafarholtsins og Reynisvatnsins og tók gangan tæpa 3 klst. með smá nestisstoppi. Eftir göngu var haldið í Hafnarfjörðinn þar sem okkur var boðið uppá dýrindis súpu og köku í eftirrétt hjá Ólu.
Takk fyrir okkur elsku Óla.
Sigga

Engin ummæli:

Skrifa ummæli