04 maí 2017

Hólmsá

Næsta laugardag verður gengið með efsta hluta Hólmsár að Nátthagavatni í Lækjarbotnum 7-8 km hringur.  Mjög skemmtilegt svæði.  Ætla má að gangan taki góða 3 tíma, en það er vel þess virði að gefa sér þann tíma svo hægt sé að ganga að kröftugum fossum sem þarna eru.  Verið í góðum skóm þar sem gönguland er á köflum þýft og grýtt og jarðvegur víða blautur núna.  Mæting við Iðnskólann í Hafnarfirði kl. 9.
Vala

Fossvallaá

Nátthagavatn

Engin ummæli:

Skrifa ummæli