Næsta laugardag verður gengið frá Konungsbrún við Nesjavallaleið um Nesjalaugar, Köldulaugagil og Hagavíkurlaugar. Þetta er litfögur leið í austurhlíðum Hengils og margt að sjá. Gönguleiðin er mishæðótt en þó engin fjallganga. Ætla má að gangan taki 4-5 klst. Endilega takið stafina með. Góð veðurspá. Mæting við Iðnskólann í Hafnarfirði kl. 9 eða við Rauðavatn kl. 9.15. Dagsferð. Nesti.
Vala
|
Þingvallavatn séð frá Hagavíkurlaugum. |
Engin ummæli:
Skrifa ummæli