Næsta laugardag göngum við uppá Sandahlíð(160 m), þaðan er mjög víðsýnt og síðan að Grunnavatni og Arnarbæli. Á köflum er gönguleiðin nokkuð gróf yfirferðar en í lokin er gengið á stígum. Þetta er um 6 km hringur og ætla má að gangan og kaffið taki 2-3 tíma. Gangan hefst við skógræktina í Sandahlíð. Mæting á malbikaða bílastæðinu við Vífilstaðavatn kl. 9. Nesti.
Vala
|
Grunnavatn
|
Engin ummæli:
Skrifa ummæli