Vala
31 maí 2014
Urriðaholt
Vala
29 maí 2014
Urriðaholt
Gengið umhverfis og uppá Urriðaholt. Stutt ganga innan við 2 klst., gott að vera í gönguskóm. Mæting við Bónus Kauptúni í Garðabæ kl. 9. Nesti.
Vala
Vala
24 maí 2014
Þingvellir
Það var heldur blautt og hryssingslegt veður sem tók á móti okkur á Þingvöllum í dag.
Það hindraði þó ekki þær 9 Fjallafreyjur sem mættu, í að ganga í þrjá og hálfan tíma.
Við slepptum því að ganga að eyðibýlinu Skógarkoti í þetta sinn, það bíður betri tíma.
Blautar en ánægðar komum við heim um kl. rúmlega 14.
Sigga

22 maí 2014
Þingvellir-kirkjuganga
Við höldum að Þingvöllum nk. laugardag. Ökum að Hakinu, göngum niður Almannagjá og förum að kirkjunni og kíkjum inn ef hún er opin. Förum síðan eftir stígum niður að vatninu að eyðibýlinu Vatnskoti, göngum eftir Vatnskotstíg að eyðibýlinu Skógarkoti. Þaðan að Öxarár fossi og nágrenni.
Þetta er ca 12 km hringur.
Nesti og dagsferð. Mæting við Iðnsk. í Hf. kl. 9, eða við Krónuna í Mosó kl. 9:20.
Sigga
Þetta er ca 12 km hringur.
Nesti og dagsferð. Mæting við Iðnsk. í Hf. kl. 9, eða við Krónuna í Mosó kl. 9:20.
Sigga
18 maí 2014
Heiðmörk-Hvaleyrarvatn
Á morgun, 19. maí hefjast síðdegisgöngurnar á mánud. og miðvd. þar sem síðdegisleikfiminni er lokið.
Mæting á mánudögum við gönguhliðið í Heiðmörk við Vífilstaða hlíð kl. 17 og við Hvaleyrarvatn á bílastæði fjær á miðvikudögum kl. 17. Gengið í ca klukkutíma.
Sjáumst.
Sigga
Mæting á mánudögum við gönguhliðið í Heiðmörk við Vífilstaða hlíð kl. 17 og við Hvaleyrarvatn á bílastæði fjær á miðvikudögum kl. 17. Gengið í ca klukkutíma.
Sjáumst.
Sigga
17 maí 2014
Sandahlíð
Eftir hellidembur í morgunsárið vorum við öllu búnar er við hófum gönguna við bílastæðið í Sandahlíðinni, en okkur til mikillar ánægju komu aðeins örfáir dropar á okkur og var hið fínasta veður. Gengið var eftir skógarstígum í hlíðinni yfir að Guðmundarlundi og hann skoðaður þvers og kruss og síðan haldið til baka eftir reiðstígum og skógarstígum og farið upp á Sandahlíðina í 160 m.y.s. en þaðan er mjög víðsýnt, skyggni hefði þó mátt vera betra. Á þessu svæði er mjög flott aðstaða fyrir nesti og grill og einnig leiksvæði fyrir börnin. Þetta tók um 2 1/2 klst og voru 9 mættar.
Vala
Vala
15 maí 2014
Sandahlíð
Gengnir malarstígar í Sandahlíð að Guðmundarlundi. Hringleið tekur ca 2-3 klst. með nestinu.
Hittumst á malbikaða planinu við Vífilstaðavatn kl. 9. Nesti.
Hittumst á malbikaða planinu við Vífilstaðavatn kl. 9. Nesti.
12 maí 2014
Gráuhnúkar
Það voru 14 sem mættu í göngu á Gráuhnúka á Hellisheiðinni í fallegu björtu veðri. Gengið var í 2 tíma í fjölbreyttu landslagi.
08 maí 2014
Gráuhnúkar
Þá eru það Gráuhnúkar á Hellisheiðinni sem er gönguleiðin okkar nk. laugardag.
Mæting við Iðnskólann í Hf. kl. 9 eða við Rauðavatn kl. 9:15.
Nesti og hlýr klæðnaður. Hálfsdagsferð.
Þórunn verður göngustjóri í þetta sinn.
Sigga
Mæting við Iðnskólann í Hf. kl. 9 eða við Rauðavatn kl. 9:15.
Nesti og hlýr klæðnaður. Hálfsdagsferð.
Þórunn verður göngustjóri í þetta sinn.
Sigga
06 maí 2014
Helgafell
5 hressar Fjallafreyjur nutu veðurblíðunnar á Helgafellinu, fljótlega var sólin farin að skína og jakkarnir komnir um mittið. Gustaði aðeins á kafla en það jók bara á hressleikann.
Vala
Vala
05 maí 2014
03 maí 2014
Blikastaðahringur
Það voru 14 Fjallafreyjur sem gengu góðan hring í Mosó í dag. Lögðum af stað frá Lágafellskirkju, gengnum í gegnum bæinn niður að sjónum (Leirvognum) og fyrir Blikastaðanesið. Gengum framhjá Skálatúni og aftur upp að kirkjunni. Þetta tók rúmlega einn og hálfan tíma. Vindurinn tók hressilega á okkur á köflum, en það kom ekki að sök og við fundum okkur kaffiskjól í kirkjugarðinum upp við kirkjuvegginn.
Sigga
Sigga
01 maí 2014
Blikastaðahringur í Mosó
Næsta laugardag göngum við á göngustígum í Mosfellsbæ, Blikastaðahring sem er um 7,5 km langur
Mæting við Iðnsk. í Hf, kl 9 eða við Lágafellsskirkju kl. 9:20. Nesti.
Sigga
Mæting við Iðnsk. í Hf, kl 9 eða við Lágafellsskirkju kl. 9:20. Nesti.
Sigga
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)