01 febrúar 2014

Ný síða, nýtt ár

   Kæru Fjallafreyjur.
Nú loksins er komin í gagnið nýja heimasíðan okkar, en sú gamla gaf upp öndina fyrirvaralaust.
Verið er að vinna að því að ná öllum gögnunum af henni til að setja á þessa, en óvíst hvort það tekst.
Myndirnar eru samt allar á sínum stað sem betur fer.

    Á nýju ári er ýmislegt á döfinni og það sem er ná næstunni er þorragangan okkar 8. febrúar.
Lagt verður af stað frá bílastæðinu við Hjalla kl. 16, gengin ca klukkutíma hringur og síðan gengið að hinum frábæra þorramat, sem nefndin hefur vega og vanda að, í gerðinu á Víðistaðatúni.
Maturinn kostar 1000 kr. á mann.
Nú geta veður og færð orðið válind á þessum árstíma og ef ekki verður hægt að snæða úti vegna veðurs verður sett upp plan B eins og á síðasta ári.

Vona að þessi síða verði vel notuð og að fullt af efni og myndum haldi áfram að safnast hér saman.

Kær kveðja
Sigga


3 ummæli:

  1. Allar geta skrifað hér. Verið duglegar við það.
    SiSk

    SvaraEyða
    Svör
    1. Mikið er nú gott að fá aftur í gagnið heimasíðu, hennar hefur verið sárt saknað.
      Vala

      Eyða