Það var aldeilis fín síðasta ganga ársins. Veður með miklum ágætum -1°C og bjart, smágustur í byrjun, en síðan hægviðri. Genginn var strandstígurinn til enda og á bakaleiðinni kíktum við í kaffi á Norðurbakkanum þar sem Kænan var lokuð. 14 galvaskar og kátar Fjallafreyjur mættu í dag.
Óska öllum Fjallafreyjum og fjölskyldum þeirra gleðilegs ár og þakka allar ánægjustundirnar á árinu sem er nú að ljúka.
Vala
Engin ummæli:
Skrifa ummæli