Eitthvað rigndi nú á okkur, en hvað um það, jörð er alauð og nýttum við okkur það og gengum rösklega upp "leggjarbrjótinn". Virkilega hressandi ganga í dag. Eftir veitingarnar á Kænunni kíktum við á leirkeraverkstæðið Gáru og einhverjar fóru út með jólagjafir og voru bara góðar með sig. 17 mættu í dag. Síðasta laugardag mættu 18 og þá var gengið um bæinn og skreytingar skoðaðar. Það sem af er vetri hefur mætingin verið mjög góð, eða frá 14-21, vonandi verður svo áfram.
Vala
Engin ummæli:
Skrifa ummæli