8 manns mættu til jónsmessugöngnnar þetta árið í mildu og fallegu veðri.
Gangan tók rúmlega 3 tíma. Uppgönguleiðin var nokkuð laus í sér eins og venjulega en annars auðveld. Þegar upp var komið sendi sólarlagið fallega birtu yfir umhverfið og þegar smá skúr kom yfir myndaðist regnboginn umhverfis okkur og fjallið og ævintýralegur ljómi lýsti upp umhverfið.
Dásamleg stund.
Sigga
27 júní 2015
23 júní 2015
Jónsmessuganga
Næsta föstudag fögnum við jónsmessu með kvöldgöngu á Keili.
Mæting við Iðnsk. í Hf. kl. 21, Nesti og hlýr klæðnaður, Veðurspáin lofar góðu.
Ítalíuferð
Áttum dásamlega daga á Ítalíu, göngu- og skoðunarferðir við Comovatn og Lugano í Sviss.
Myndin er tekin á San Salvatore fjalli við Lugano á þjóðhátiðardaginn 17. júní
Sigga
Myndin er tekin á San Salvatore fjalli við Lugano á þjóðhátiðardaginn 17. júní
Sigga
20 júní 2015
Ketilsstígur - Miðdegishnúkur
Bara 4 mættu í gönguna í dag. Gengið var frá hverasvæðinu við Seltún eftir Ketilsstíg framhjá Arnarvatni og fram á vesturbrún Sveifluhálsins og þar var horft yfir Ketilinn sem stígurinn dregur nafn sitt af, þarna er mjög gott útsýni yfir Móhálsadalinn. Allir voru sammála um að ganga á Miðdegishnúk (392 m) og ekki vorum við svikin af útsýninu þar. Það er alveg magnað að ganga um Sveifluhálsinn, mjög hrikalegur víða og ýmist algjör auðn eða grösugir balar. Veður var með ágætum, hægviðri og hlýtt, en smá væta af og til. Gangan reyndist 11 km og tók 4 tíma.
Vala
Vala
18 júní 2015
Ketilstígur
Gengið frá Seltúni við Kleifarvatn um Ketilstíg upp í Sveifluhálsinn og þar genginn hringur. Mæting við Iðnskólann í Hafnarfirði kl. 9. Nesti. Hálfsdagsferð.
Vala
Vala
15 júní 2015
Dásamlegt veður á Smalaholti
5 Fjallafreyjur fengu aldeilis gott veður í göngunni í dag. Gengið var frá Vífilstaðavatni yfir á Smalaholt og skógarstígum fylgt upp á háhæðina (125 m) þar er útsýnisskífa og frábært útsýni. Allur fjallahringur blasti við okkur og var Snæfellsnesið mjög skýrt og flott. Rétt við skífuna er konumynd rist í klöppina. Af Smalaholtinu gengum við að útvistarsvæðinu við Sandahlíð og þaðan niður að Vífilstaðavatni, en heldur var torfært þar á kafla, en alltaf má finna leið. Eftir tveggja tíma göngu fengum við okkur svo langþráðan sopann.
Vala
Vala
11 júní 2015
Smalaholt
Gengið frá Vífilstaðavatn um stíga skógræktarinnar á Smalaholti. Mæting á malbikaða bílastæðinu við vatnið kl. 9. Nesti.
Vala
Vala
06 júní 2015
Góður dagur á Skógfellavegi
Skógfellavegur er mjög skemmtileg gönguleið, fjölbreytt gönguland og fallegt umhverfi. Lagt var upp frá spennustöðinni við Voga og endað við íþróttasvæðið í Grindavík, vegalengdin mældist 17 km og tók tæpa 6 tíma. Veður var með ágætum og kunnum við vel að meta það eftir það sem á undan hefur gengið. 13 gengu í dag og voru allir brattir að leiðarlokum. Takk fyrir samveruna.
Vala
Vala
04 júní 2015
Skógfellavegur
Gengin gömul þjóðleið milli Voga og Grindavíkur um 15 km löng. Ætla má að gangan taki 5-6 klst. Mæting við Iðnskólann í Hafnarfirði kl. 9. Dagsferð. Nesti. 2 í bíl.
Núna lítur vel út með veður.
Vala
Núna lítur vel út með veður.
Vala
02 júní 2015
Helgafellið..
..tók vel á móti okkur í dag, vindur hægari en í bænum og sól og blíða á toppnum. Alveg ljómandi fínt.
Vala
Vala
01 júní 2015
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)