21 mars 2015

Enginn hálka

Mikið var nú gaman að geta gengið um alveg auða stíga bæjarins og það í þessu fína veðri, 7°C, þurru og hægu.  Gengum hring á Völlunum.  22 mætt í dag.
Vala

3 ummæli:

  1. Smalastúlkan eftir Hannes Hafstein. Erótískt kvæði frá því um 1900.

    Man ég þegar ég fyrst þess fann
    fulljós sannindamerki.
    Að ég mátti þó heita HANN
    þó hefði ég það lítt fram í verki.

    Ég var að huga að hestum þá
    ég held svona um dagmálabilið.
    Þreyttur labbaði ég upp með á
    austanverðu við gilið.

    Þegar ég staulaðist stekknum hjá
    ég stansaði svo sem af vana
    Uppá melnum ég meyju sá
    mér varð starsýnt á hana.

    Hún var feitlagin heit og rjóð
    hafði verið að smala.
    Hneppti treyjunni frá sér fljóð
    að fá sér dálítinn svala.

    Bolurinn of lítill orðinn var
    að ofan náði hann ei saman.
    Var sem brjóstin út brytust þar
    og biluð var reimin að framan.

    Ég tók ósköp vel eftir því
    og undarlegt fannst mér það vera
    Sást þar skyrtuna skína í
    og skein á armana bera.

    Morgungolan á móti var
    mjúklega fötin að lagði.
    Pilsið færðist í fellingar
    og frá hennar skapnaði sagði.

    Ég var feiminn og stökk af stað
    en stalst þó að gægjast til vífsins.
    Ég vissi ei þá en nú veit ég það
    að vaknað ég hafði til lífsins.
    kv
    SvanaG

    SvaraEyða
    Svör
    1. Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.

      Eyða
    2. Takk fyrir þetta Svana. Flutningur ykkar Gunnu í stofunni á Eyri á þessu kvæði var ógleymanlegur :9
      Sigga

      Eyða