Það var aldeilis fínt að ganga í dag, logn, 0°C og sól, alveg hreint dásamlegt. Að venju fórum við á Kænuna að göngu lokinni og var ekki síður gaman þar, fyrir utan mikið spjall flutti Svana G. ásamt fleirum kvæði Hannesar Hafstein Smalastúlkuna. Kvæði þetta má sjá í ummælum eftir síðustu færslu hér á síðunni. Maddý var með fullt af myndum frá 5 ára afmæli Fjallafreyja, en eftir rúman mánuð þ.e. 6. maí n.k. verða Fjallafreyjur 20 ára.
Eins og kemur fram í titlinum var þetta síðasta Kænugangan að sinni, næsta laugardag hefst skipululögð göngudagskrá í Heiðmörk kl. 10. 20 mætt í dag.
Vala
28 mars 2015
21 mars 2015
Enginn hálka
Mikið var nú gaman að geta gengið um alveg auða stíga bæjarins og það í þessu fína veðri, 7°C, þurru og hægu. Gengum hring á Völlunum. 22 mætt í dag.
Vala
Vala
11 mars 2015
Vala 60 ára 12. mars
Þessi valkyrja og fjalladrottning er sextug á morgun, 12. mars. Fjallafreyjur óska henni að sjálfsögðu til hamingju með daginn :)
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)