Það var hálfhryssingslegt þegar hópurinn hittist við IKEA í morgun, en strax og við fórum að hreyfa okkur var það fljótt að gleymast. Gengum umhverfis Urriðaholtið á rúmum klukkutíma og að göngu lokinni var veisla í IKEA. 17 mætt í dag.
Vala
26 mars 2016
24 mars 2016
Gönguáætlun 2016 og laugardagsganga 26. mars
Sælar.
Nú er gönguáætlunin komin á síðuna okkar og um að gera að kynna sér hana vel.
Laugardagsgangan okkar verður frá IKEA, nálægt inngangi.
Þaðan finnum við okkur góða gönguleið og endum í kaffi á veitingastað IKEA.
Sigga

19 mars 2016
Síðasta Kænugangan
Aldeilis flott veður í dag, skunduðum "Leggjarbrjótinn" og nutum blíðviðrisins til fullnustu. 21 mætt í dag. Eins og áður segir var þetta síðasta Kænugangan í bili. Næsta laugardag verður Kænan lokuð og seinna í vikunni mun verða auglýst hér á síðunni hvað gert verður þá. Svo um að gera að fylgjast með.
Vala
Vala
05 mars 2016
Alveg að koma vor :)
Fínt veður 2°C, þurrt og logn. Gengum strandstíginn að venju en broddalaus í þetta sinn, því hálkan er á hröðu undanhaldi. Þetta er alltaf jafngaman og gott. 16 mætt í dag.
Vala
Vala
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)