Við ræddum það að í svona flottu veðri eins og í dag væri maður gripinn vortilfinningu og mikið óskaplega er það góð tilfinning. Hiti kringum frostmark, logn og léttskýjað, sjórinn spegilsléttur. Yndislegt! Gengum strandstíginn sem í byrjun var ansi háll vegna ísingar, en á bakaleiðinni hafði hún bráðnað. 15 mætt í dag.
Vala
Engin ummæli:
Skrifa ummæli