Garðabær heilsaði okkur með flottu veðri þegar við gengum þangað frá listaverkinu Jötnum við Fjarðarkaup, en markmiðið var að skoða þau útilistaverk sem við vissum um í Garðabæ, en þau eru þó nokkur og alveg ótrúlegt hvað þau hafa farið framhjá manni. Þegar við áttum leið um Garðatorg kölluðu Sjálfstæðismenn í bænum í okkur og buðu í kaffi og smáspjall og síðan var haldið áfram göngu, að henni lokinni fundum við ótrúlega fínan nestisstað í hraunin við Fjarðarkaup. Hringurinn sem var genginn var um 8,5 km og tók rúmlega 2 1/2 tíma með kaffitímunum. Eitt listaverk bíður seinni tíma, nánar tiltekið 31. maí, en þá göngum við um Urriðaholt. 15 mætt í dag.
Vala
Jónas, Sigrún S, Svana, Sjöfn, Mumma, Sigrún Ó, Dagný, Ella, Gitta, Eygló, Óla, Lillý, Sóla, Magga og Vala tók mynd.
26 apríl 2014
24 apríl 2014
Listaverk í Garðabæ
Gangan hefst við Jötna listaverkið við Fjarðarkaup, þaðan gengið eftir göngustígum yfir í Garðabæ og skoðuð 9 útilistaverk þar. Hringurinn er um 8,5 km. Mæting við Fjarðarkaup kl. 10. Nesti.
Vala
Vala
19 apríl 2014
Sól á himni, sól í hjarta
Vala
Smellið á myndirnar til að skoða þær stærri
18 apríl 2014
Heiðmörk
Nú er um að gera að klæða sig eftir veðri og skella sér í göngu í Heiðmörkinni, mæting við gönguhliðið kl. 10, kaffi á brúsa. Síðustu 2 laugardaga mættu 13-14 Fjallafreyjur og eftir góða göngu á Álftanesinu bauð Sóla hersingunni heim í kaffi öllum til mikillar ánægju.
Vala
10 apríl 2014
Álftaneshringur
Næsta laugardag verður genginn hringur á Álftanesinu. Mæting við Hrafnistu Hf. kl. 10. Nesti
Verð með ykkur í huganum. Eigið allar gleðilega páska.
Sigga (á leið í ævintýraferð)
Verð með ykkur í huganum. Eigið allar gleðilega páska.
Sigga (á leið í ævintýraferð)
03 apríl 2014
Heiðmörk
Mæting við gönguhliðið kl. 10, kaffi á brúsa og góða skapið með því nú er vor í lofti :)
Sigga
02 apríl 2014
Helgafell
Í góðu veðri mættu 11 Fjallafreyjur og -fákar í fyrstu göngu ársins á Helgafellið. Ferðin gekk vel og þeir örfáu snjóskaflar sem eftir eru í fjallinu voru ekki til trafala. Á bakaleiðinni var komið stafalogn og var yndislegt að ganga við þær aðstæður.
Vala
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)