Gönguleiðin úr Dyradal, um Dyrakamb og niður í Botnadal er ákaflega falleg. Við vorum 14 sem gengu þessa 6 km og vorum virkilega heppin með veður. Leiðin eru töluvert mishæðótt og mældist uppsöfnuð hækkun um 260 m.
Vala
29 júlí 2018
26 júlí 2018
Dyradalur-Botnadalur
Næsta laugardag verður gengið frá Dyradal við Nesjavallaleið um Dyrakamb að Botnadal í Grafningi, þetta er stikuð um 5 km leið, á köflum seinfarin, hækkun um 150 m. Skiljum helming bílanna eftir í Botnadal og ökum síðan að Dyradal þar sem gangan hefst. Þetta er verulega falleg gönguleið. Gerum ráð fyrir ca 3 klst í göngu og 5 klst í heildarferðina. Gott að hafa stafi. ATH bara 2 í bíl. Mæting við Iðnskólann í Hafnarf. kl. 9
Vala
Vala
21 júlí 2018
Litluborgirnar ofl.
Góð ganga í lygnu og mildu veðri, en stöðugum sudda. 15 gengu úr Kaldárbotnum, með Undirhlíðum, upp Kýrskarð og að Litluborgum, þaðan var síðan gengið í Valaból og um Helgadal. 10 km á 4 klst.
Vala
Vala
19 júlí 2018
Undirhlíðar-Litluborgir-Valaból
Næstkomandi laugardag verður genginn um 10 km hringur frá Kaldárseli. Farið verður með Undirhliðum, um Kýrskarð, meðfram Helgafelli að Litluborgum og þaðan í Valaból. Litluborgir láta lítið yfir sér úr fjarska, en þegar að er komið blasir glæsileikinn við. Ef veður verður þokkalegt gefum við okkur góðan tíma þarna til að skoða. Í Valaból þessa vin í auðninni er alltaf gaman að koma. Reikna má með 4-5 tímum í ferðina.
Mæting við Iðnskólann í Hafnarfirðikl. 9.
Vala
Mæting við Iðnskólann í Hafnarfirðikl. 9.
Vala
Kýrskarð í Undirhliðum |
Í Litluborgum |
Í Valabóli á góðum degi |
18 júlí 2018
14 júlí 2018
Hafnabergið ..
.. tók vel á móti okkur 10 Fjallafreyjum og -fákum með logni og mildu veðri. Náttúrufegurðin er stórbrotin og meiriháttar gaman að horfa á bergið og fuglana og hlusta á sjávarniðinn. Gengnir voru 9 km á 3 1/2 klst.
Vala
Vala
12 júlí 2018
Hafnaberg
Í stað göngunnar við Heklurætur sem frestað hefur verið um óákveðinn tíma verður gengið út á Hafnaberg næstkomandi laugardag.
Gangan hefst í Stóru Sandvík og verður genginn hringur með brúnum bjargsins og síðan eftir gömlum veg til baka. Gönguvegalengd um 10 km sem reikna má með að taki um 4 klst. Áætluð heimkoma um kl. 15. Hafnabergið er mjög fallegt og mikið fuglalíf er þar.
Mæting við Iðnskólann í Hafnarfirði kl. 9.
Vala
Mæting við Iðnskólann í Hafnarfirði kl. 9.
Vala
11 júlí 2018
07 júlí 2018
Nágrenni Reynisvatns
Ljúf ganga frá Reynisvatni umhverfis Reynisvatnsás og um Reynisvatnsheiði. Góðir stígar, gott veður og góður hópur, úrkoma vart merkjanlegt. Maður bara biður ekki um meira. 12 nutu göngunnar og gengu tæpa 8 km á 2,45 klst.
Vala
Vala
05 júlí 2018
Reynisvatnsás
Næsta laugardag verður genginn hringur frá Reynisvatni umhverfis Reynisvatnsás og um Reynisvatnsheiði. Farnir verða malarstígar og slóðar um 8 km löng ganga og ætla má að hún taki um 3 klst. Skemmtilegt útsýni á þessari leið.
Mæting við Iðnskólann í Hafnarfirði kl. 9.
Vala
Mæting við Iðnskólann í Hafnarfirði kl. 9.
Vala
02 júlí 2018
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)