Þeir gerast ekki fallegri vetrardagarnir en dagurinn í dag. Frost 9°C, logn, heiðríkja og þykkur drifhvítur jafnfallinn snjór. Gengum um miðbæinn og nutum þess að horfa á það sem fyrir augu bar, jólaþorpið, skreytingarnar og snjóinn. 17 mætt í dag.
Vala
28 nóvember 2015
23 nóvember 2015
Jólaföndur
14 nóvember 2015
Rósa sextug
13 mættu í göngu í dag frá Kænunni. Að göngu lokinni var haldið upp í Þórsberg til Rósu, sem er sextug í dag og óskum við henni innilega til hamingju.
Hún tók á móti okkur með dýrindis kjötsúpu, gómsætu brauði og áleggi og kaffi og afmælisköku í lokinn.
Kærar þakkir fyrir okkur elsku Rósa og Benni.
Hún tók á móti okkur með dýrindis kjötsúpu, gómsætu brauði og áleggi og kaffi og afmælisköku í lokinn.
Kærar þakkir fyrir okkur elsku Rósa og Benni.
Rósa afmælisbarn með Fjallafreyjunum |
Heiðurshjóninin Benni og Rósa |
Göngukonur |
07 nóvember 2015
Hlýtt og lygnt..
.. í dag 6°C en rigning í upphafi göngu. Gengið var að Einarsreit og skoðaðar minjarnar um saltfisþurrkunina og hvað göngustígurinn þarna yfir er vel heppnaður. Virtum fyrir okkur álfakirkjuna rétt við Mánastíginn og gömlu hleðslunar þar í kring. 15 mætt í dag.
Vala
Vala
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)